Nokia N95 8GB - Uppsetning forrita og hugbúnaðar 

background image

Uppsetning forrita og

hugbúnaðar

Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr

samhæfðri tölvu, hlaða þeim niður þegar vafrað er

og fá þær sendar í margmiðlunarskilaboðum og

tölvupóstsviðhengjum eða með öðrum hætti, s.s.

með Bluetooth eða um innrautt tengi. Þú getur

notað Nokia Application Installer í Nokia Nseries PC

Suite til að setja upp forrit í tækinu.

táknar .sis eða .sisx-forrit, Java-forrit, að

forritið hafi ekki verið sett upp að fullu og að

forritið sé uppsett í gagnageymslu.

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota

forrit og annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d.

forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið

prófuð með Java Verified

.

Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:

Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og

seljanda eða framleiðanda forritsins skaltu velja

Valkostir

>

Skoða frekari uppl.

.

Til að sjá upplýsingar um öryggisvottorð

forritsins skaltu velja

Upplýsingar:

, fletta að

Vottorð

og síðan

Skoða upplýsingar

.

Sjá

„Vottorðastjórnun“, bls. 151.

Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu

eða endurbætur á forriti sem þegar er uppsett

geturðu aðeins endurheimt upphaflega forritið

ef annað hvort upphaflega uppsetningarskráin

er fyrir hendi, eða öryggisafrit af öllum

hugbúnaðarpakkanum sem var fjarlægður. Til að

endurheimta upphaflega forritið skaltu fyrst

fjarlægja forritið og síðan setja það upp aftur úr

upphaflegu uppsetningarskránni eða

öryggisafritinu.
Nauðsynlegt er að hafa .jar-skrá til að setja upp

Java-forrit. Ef skrána vantar getur tækið beðið þig

um að hlaða henni niður. Ef enginn

aðgangsstaður er tilgreindur fyrir forritið biður

tækið þig um að velja aðgangsstað. Þegar þú

hleður niður .jar-skránni geturðu þurft að slá inn

notandanafn og lykilorð til að fá aðgang að

miðlaranum. Þú getur fengið notandanafn og

lykilorð hjá söluaðila eða framleiðanda forritsins.

Til að setja upp forrit eða hugbúnað gerirðu

eftirfarandi:

1.

Til að staðsetja uppsetningarskrá skaltu ýta á

og velja

Forrit

>

Stj. forrita

. Einnig er hægt

að leita í minninu í skráarstjóranum og opna

skilaboð í

Skilaboð

>

Innhólf

sem innihalda

uppsetningarskrá.

2.

Í stjórnanda forrita velurðu

Valkostir

>

Setja

upp

. Í öðrum forritum skaltu fletta að

uppsetningarskránni og ýta á hana til að hefja

uppsetninguna.

142

Forritamappa

background image

Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið

upplýsingar um stöðu uppsetningarinnar. Ef þú

setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða

vottorðs birtir tækið viðvörun. Þú skalt aðeins

halda áfram að setja upp forritið ef þú ert viss

um uppruna þess og innihald.

Til að ræsa uppsett forrit skaltu staðsetja það í

valmyndinni og velja það. Ef forritið er ekki með

sjálfgefna möppu skilgreinda er það sett upp í

Forrit

-möppunni í aðalskjánum.

Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir

upp eða fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu

velja

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt

vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en eins

vírusvarnaforrits getur haft áhrif á afkastagetu og

virkni eða stöðvað virkni tækisins.
Uppsetningarskrár (.sis eða .sisx) eru áfram í minni

tækisins eftir að forrit þeirra hafa verið sett upp á

samhæfu minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið

minni og valdið því að ekki sé hægt að vista aðrar

skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia Nseries

PC Suite til að taka öryggisafrit af

uppsetningarskrám og setja afritið á samhæfa

tölvu. Að því loknu skaltu nota Skráarstjórann til að

eyða uppsetningarskránum úr minni tækisins.

Ef .sis-skráin er viðhengi með skilaboðum skaltu

eyða skilaboðunum úr innhólfinu.

Sjá „Skráastjóri“, bls. 145.