Nokia N95 8GB - Stillingar fyrir heimakerfi

background image

Stillingar fyrir heimakerfi

Til að samnýta skrár sem eru vistaðar í Galleríinu á

samhæfum UPnP-tækjum á þráðlausu staðarneti

þarftu fyrst að búa til og stilla netaðgagnsstað fyrir

staðarnetið og svo að velja stillingar fyrir

heimakerfið í

Heimakerfi

forritinu.

Sjá „WLAN-

netaðgangsstaðir“, bls. 34.

Sjá

„Tengistillingar“, bls. 155.

Ekki er hægt að velja valkosti tengda heimakerfi

áður en stillingar hafa verið valdar í

Heimakerfi

forritinu.
Þegar þú opnar

Heimakerfi

forritið í fyrsta skipti

opnast stillingahjálpin sem aðstoðar þig við að velja

stillingar fyrir tækið þitt. Hægt er að nota

stillingahjálpina síðar með því að fara í

Heimakerfi

aðalskjáinn, velja

Valkostir

>

Keyra

hjálp

og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.

Nauðsynlegt er að setja upp samhæfan hugbúnað á

tölvu sem tengja á við heimakerfið. Hugbúnaðinn

er að finna á geisladiskinum eða DVD-diskinum sem

fylgir með tækinu en einnig er hægt að hlaða

honum niður af þjónustusíðum á vefsíðu Nokia.

Stillingar

Heimakerfið er stillt með því að velja

Verkfæri

>

Tenging

>

Heimakerfi

>

Stillingar

og úr

eftirfarandi:

Heimaaðgangsstaður

— Veldu

Spyrja alltaf

ef

þú vilt að tækið spyrji um aðgangsstaðinn í hvert

skipti sem það er tengt við heimakerfið,

Búa til

nýjan

til að velja nýjan aðgangsstað sem er

sjálfkrafa notaður þegar heimakerfið er notað,

eða

Enginn

. Öryggisviðvörun birtist ef ekki er

kveikt á neinum öryggisstillingum í

heimakerfinu fyrir þráðlausa staðarnetið. Þú

getur haldið áfram og kveikt á örygginu síðar,

sem og hætt við að tilgreina aðgangsstaðinn og

byrjað á því að kveikja á öryggi kerfisins.

Sjá

„Aðgangsstaðir“, bls. 156.

Heiti tækisins

— Sláðu inn nafn fyrir tækið sem

birtist í samhæfum tækjum á heimkerfinu.

Afrita

— Veldu minnið þar sem vista á afritaðar

skrár.