Nokia N95 8GB - Í netsíma

background image

Í netsíma

Með netsímaþjónustunni (sérþjónusta) er hægt að

hringja og svara símtölum um internetið. Hægt er

að koma á netsímtölum á milli tölva, á milli farsíma

og á milli netsímabúnaðar og venjulegs síma. Tækið

þitt þarf að vera tengt við netsímaþjónustuna til að

þú getir hringt netsímtöl.
Til að tengjast netsímaþjónustu verður tækið að ná

sambandi við netkerfi, s.s. þráðlaust staðarnet.
Tækið styður símtöl um internetið (netsímtöl).

Tækið reynir fyrst og fremst að koma á

neyðarsímtölum í farsímakerfum. Ef neyðarsímtal

tekst ekki í farsímakerfi reynir tækið neyðarsímtal

um þjónustuveitu netsímtala. Vegna þeirrar

útbreiðslu sem farsímatækni hefur náð skal nota

farsímakerfi fyrir neyðarsímtöl þar sem það er

hægt. Ef farsíminn er innan þjónustusvæðis skal

ganga úr skugga um að kveikt sé á honum og að

hægt sé að hringja áður en reynt er að hringja

neyðarsímtal. Möguleikinn á neyðarsímtölum um

internetið fer eftir tiltækni þráðlauss staðarnets og

því hvort þjónustuveitan hafi sett símann upp fyrir

slík símtöl. Nánari upplýsingar um neyðarsímtöl um

internetið fást hjá þjónustuveitu netsímtala.