Nokia N95 8GB - Raddstýrð hringing

background image

Raddstýrð hringing

Tækið þitt styður raddskipanir. Raddskipanir velta

ekki á rödd notandans þannig að hann þarf ekki að

taka upp raddmerki áður en hann notar þær. Þess í

stað býr tækið til raddmerki fyrir færslur í

tengiliðum og ber það raddmerki sem notandinn

segir saman við þær. Raddkennslin í tækinu laga sig

að rödd aðalnotandans til að líklegra sé að tækið

beri kennsl á raddskipunina.
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið

sem er vistað á tengiliðaspjaldinu. Til að hlusta á

tilbúna raddmerkið skaltu opna tengiliðaspjald og

velja

Valkostir

>

Spila raddmerki

.

Hringt með raddmerki

Til athugunar: Notkun raddmerkja getur

verið erfið í hávaðasömu umhverfi eða í

neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á

raddstýrt val við allar aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn

í notkun. Haltu tækinu nálægt þér þegar þú berð

fram raddmerkið.

1.

Haltu inni hægri valtakkanum í biðstöðu til að

hefja raddstýrða hringingu. Ef samhæft höfuðtól

með höfuðtólstakka er notað skaltu halda

honum inni til að hefja raddstýrða hringingu.

2.

Stuttur tónn heyrist og textinn

Tala nú

birtist á

skjánum. Berðu skýrt fram nafnið eða

gælunafnið sem er vistað á tengiliðarspjaldinu.

3.

Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á

því tungumáli sem er valið og birtir nafnið og

símanúmerið. Eftir 2,5 sekúndur hringir tækið í

númerið. Ef tækið valdi rangan tengilið skaltu

velja

Næsta

til að skoða aðrar niðurstöður á lista

eða

Hætta

til að hætta við raddstýrða hringingu.

Ef nokkur númer eru vistuð undir nafninu velur

tækið sjálfgefna númerið, hafi það verið tilgreint.

Annars velur tækið fyrsta nafnið á tengiliðaspjaldi.