
Um Nokia Lifeblog
Lifeblog er hugbúnaður fyrir farsíma og tölvur sem
heldur margmiðlunarskrá (dagbók) yfir þá hluti sem
er að finna í tækinu. Lifeblog raðar myndum,
myndskeiðum, hljóði, textaskilaboðum,
margmiðlunarskilaboðum og bloggfærslum í
tímaröð sem hægt er að skoða, leita í, birta og taka
öryggisafrit af. Hægt er að nota Nokia Lifeblog í
tölvu og farsíma til að senda og birta færslur.
Lifeblog fyrir farsíma heldur sjálfkrafa utan um
margmiðlunarhlutina þína. Hægt er að nota
Lifeblog í tækinu til að skoða færslur, senda þær til
annarra eða birta þær á vefnum. Tengdu tækið við
samhæfa tölvu með samhæfri USB-snúru eða
Bluetooth til að flytja og samstilla færslur í tækinu
við samhæfu tölvuna.
Með Lifeblog PC er hægt að skoða og leita að
færslum í tækinu á auðveldan hátt. Þegar tækið er
tengt við tölvu með USB-snúru eða Bluetooth er
hægt að færa myndir, myndskeið, texta og
margmiðlunarskilaboð aftur yfir í tækið á einfaldan
hátt.
Hægt er að taka öryggisafrit af Nokia Lifeblog
gagnagrunninum og setja það á harðan disk í tölvu,
geisladisk, DVD, utanáliggjandi drif eða netdrif. Auk
þess er hægt að vista færslur á bloggsíðu.
Nánari upplýsingar um bloggþjónustuna og
samhæfni hennar við Nokia Lifeblog er að finna á
www.nokia.com/lifeblog, eða með því að ýta á F1 í
Nokia Lifeblog tölvuforritinu til að opna
hjálpartexta Nokia Lifeblog.
63
Mappa h
ljó
ð- og myn
dsk
ráa