Nokia N95 8GB - Ábendingar um hvernig á að taka góðar myndir

background image

Ábendingar um hvernig á að taka

góðar myndir

Myndgæði

Notaðu viðeigandi myndgæði. Myndavélin er með

nokkrar stillingar fyrir myndgæði. Notaðu hæstu

stillinguna til að myndgæðin verði eins og þau best

geta orðið. Hafðu þó í huga að mestu myndgæðin

taka mest geymslupláss. Hugsanlega verður að nota

minnstu gæðin fyrir margmiðlunarskilaboð (MMS)

og tölvupóstviðhengi. Hægt er að velja gæðin í

stillingum myndavélarinnar.

Sjá „Stillingar fyrir

kyrrmyndir“, bls. 76.

Bakgrunnur

Notaðu einfaldan bakgrunn. Þegar teknar eru

andlitsmyndir eða aðrar myndir af fólki skal forðast

að stilla myndefninu upp fyrir framan

óreiðukenndan og flókinn bakgrunn sem dreifir

athyglinni. Færðu myndavélina, eða myndefnið, ef

þessum skilyrðum er ekki fullnægt. Færðu

myndavélina nær myndefninu til að myndin verði

skýrari.

Dýpt

Þegar landslagsmyndir eru teknar má auka dýpt

myndanna með því að stilla hlutum upp í forgrunni.

Ef þessir hlutir eru of nálægt myndavélinni getur

myndin þó orðið óskýr.

Birtuskilyrði

73

Myndavél

background image

Breytingar á ljósgjafa, birtumagni og áttinni sem

ljósið kemur úr geta gerbreytt ljósmyndum. Hér eru

nokkur dæmi um algeng birtuskilyrði:

Ljósgjafinn er fyrir aftan myndefnið. Forðast skal

að stilla myndefni upp fyrir framan sterkt ljós. Ef

ljósgjafinn er fyrir aftan myndefnið eða sést á

skjánum mun myndin koma til með að hafa mjög

veik birtuskil og verða of dökk, auk annarra

óæskilegra áhrifa.

Birtan er til hliðar við myndefnið. Sterkt hliðarljós

getur bætt við dramatískum áhrifum en því má

ekki ofgera og þannig valda of miklum

birtuskilum.

Ljósgjafinn er fyrir framan myndefnið. Sterkt

sólarljós hefur þau áhrif að fólk pírir augun.

Ljósið getur einnig valdið of miklum birtuskilum.

Ákjósanleg birtuskilyrði eru þegar nóg er af

dreifðri, mjúkri birtu, líkt og á björtum og

hálfskýjuðum degi eða sólríkum degi í skugga

trjáa.