Nokia N95 8GB - Myndataka

background image

Myndataka

Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:

Hægt er að gera breytingar á lita- og

birtustillingum með því að fletta gegnum

tækjastikuna með skruntakkanum.

Sjá

„Mynduppsetning—stillingar fyrir liti og

lýsingu“, bls. 77.

Það getur tekið lengri tíma að

vista myndir ef stillingum fyrir stækkun, lýsingu

eða liti er breytt.

Hægt er að losa um minni fyrir nýjar myndir með

því að búa til öryggisafrit af skrám og setja það í

samhæfa tölvu með því að nota t.d. USB-

gagnasnúruna. Tækið birtir tilkynningu þegar

minnið er fullt og spurt er hvort velja eigi nýtt

minni.

Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:

Notaðu báðar hendur til að halda myndavélinni

kyrri.

Myndgæðin minnka þegar súmmið er notað.

Kveikt er á orkusparnaði myndavélarinnar ef ekki

hefur verið ýtt á neinn takka í tiltekinn tíma. Ýttu

á myndatökutakkann til að halda áfram að taka

myndir.

Myndir eru teknar á eftirfarandi hátt:

1.

Ef myndavélin er stillt á myndupptöku velurðu

myndatöku á tækjastikunni.

2.

Ýttu

myndatökutakkanum

niður til hálfs til að festa

fókusinn á myndefnið

(aðeins í aðalmyndavél,

ekki í boði í landslags- og

íþróttastillingu). Á

skjánum birtist grænn

fókusvísir. Hafi fókusinn

ekki verið festur birtist

rauður fókusvísir. Slepptu myndatökutakkanum

og ýttu honum aftur niður til hálfs. Hægt er að

taka mynd án þess að fókusinn hafi verið festur.

70

Myndavél

background image

3.

Mynd er tekin með því að ýta á

myndatökutakkann. Ekki hreyfa tækið fyrr en

myndin hefur verið vistuð.

Við myndatöku skaltu nota súmmtakka tækisins til

að súmma að eða frá.

Ábending: Ýtt er tvisvar sinnum á

á

hlið tækisins til að opna Galleríið og skoða

myndirnar sem búið er að taka.

Kveikt er á fremri myndavélinni með því að velja

Valkostir

>

Nota myndavél 2

. Mynd er tekin með

því að ýta á skruntakkann. Mynd er stækkuð eða

minnkuð með því að fletta upp eða niður.
Ef þú vilt hafa kveikt á myndavélinni í bakgrunni og

nota önnur forrit ýtirðu á

. Ýttu á

myndatökutakkann til að geta notað myndavélina.