Nokia N95 8GB - Um myndavélina

background image

Um myndavélina

Í Nokia N95 8GB tækinu eru tvær myndavélar, ein

með hárri upplausn aftan á tækinu (aðalmyndavél,

allt að 5 megapixla með landslagsstillingu) og

önnur með minni upplausn framan á því (fremri

myndavél með andlitsmyndastillingu). Hægt er að

nota báðar myndavélarnar til að taka myndir og

myndskeið.
Þetta tæki styður 2592x1944 punkta

myndupplausn. Myndupplausnin í þessari handbók

getur virst önnur.
Myndir og myndskeið vistast sjálfkrafa í

Myndefni

í

Galleríi. Myndir eru teknar á .jpeg sniði. Myndskeið

eru tekin upp á MPEG-4-sniði með endingunni .mp4,

eða á 3GPP-sniði með endingunni .3gp

(samnýtingargæði).

Sjá „Stillingar

myndskeiða“, bls. 78.

Hægt er að senda myndir og myndskeið í

margmiðlunarskilaboðum, sem viðhengi í

tölvupósti eða með öðrum sendiaðferðum, t.d. um

Bluetooth eða með tengingu við þráðlaust

staðarnet. Einnig er hægt að hlaða þeim upp í

samhæft netalbúm.

Sjá „Samnýting mynda og

hreyfimynda á netinu“, bls. 86.

Til að tryggja bestu stærð mynda eða myndskeiða

fyrir sendingu velurðu gæði í stillingum

myndavélarinnar. Upplýsingar um stærðartakmörk

fyrir MMS og tölvupóst fást hjá þjónustuveitunni.