Nokia N95 8GB - Spilaranafn búið til

background image

Spilaranafn búið til

Hægt er að hlaða niður, kaupa og spila leiki án þess

að vera með spilaranafn, en mælt er með að nafn sé

búið til. Spilaranafn gerir þér kleift að taka þátt í N-

Gage hópi, tengjast öðrum spilurum og deila

árangri, tillögum og athugasemdum með öðrum.

Einnig þarftu spilaranafn til að geta flutt

notandalýsinguna þína og N-Gage stig yfir í annað

tæki.
Þegar þú ræsir N-Gage forritið og tengist N-Gage

þjónustunni í fyrsta skipti ertu beðinn um að búa til

N-Gage spilaranafn. Þú getur t.d. tengst netinu með

því að gera þig tiltækan í leik og velja

Options

>

Set Online Status

>

Available to Play

+.

Ef þú ert kominn með N-Gage spilaranafn velurðu Í

áskrift, og slærð inn notandanafnið þitt og

lykilorðið til að skrá þig inn.
Til að búa til nýtt spilaranafn:

1.

Veldu Skrá nýja áskrift.

2.

Sláðu inn fæðingardag þinn, spilaranafn og

lykilorð. Ef einhver annar er kominn með

spilaranafnið kemur N-Gage með lista yfir svipuð

nöfn.

3.

Til að skrá spilaranafnið slærðu inn upplýsingar

um þig, lest og samþykkir skilmála og skilyrði og

velur

Register

.

Einnig geturðu búið þér til spilaranafn á vefsvæði N-

Gage, www.n-gage.com.
Þegar þú hefur búið til spilaranafn breytirðu

stillingum og persónulegum upplýsingum í

einkaflipanum í Notandalýsingunni.
Gagnaflutningsgjöld kunna að vera innheimt ef

spilaranafn er búið til í tækinu þínu.