Nokia N95 8GB - Um N-Gage

background image

Um N-Gage

N-Gage er farleikjatölva sem er í boði fyrir ýmis

samhæf Nokia-fartæki. Hægt er að nálgast N-Gage

leiki, spilara og efni um N-Gage forritið í tækinu

þínu. Einnig er hægt að hlaða niður leikjum og fá

aðgang að ýmsum aðgerðum á tölvunni á slóðinni

www.n-gage.com.
Með N-Gage geturðu keypt og hlaðið niður leikjum,

og spilað þá við sjálfan þig eða við vini. Þú getur

hlaðið niður sýnishornum til að prófa nýja leiki, og

keypt svo þá sem þú vilt. N-Gage gefur þér líka kost

á að vera í sambandi við aðra spilara, og að deila

stigafjölda þínum og árangri með öðrum.
Þú þarft að vera með GPRS eða 3G tengingu til að

geta notað N-Gage. Einnig er hægt að nota

þráðlaust heimanet. Einnig þarf tengingu til að

opna aðgerðir á netinu, svo sem niðurhal á leikjum,

leyfi fyrir leikjum, leiki með mörgum spilurum eða

spjall. Einnig þarf tengingu til að taka þátt í leikjum

á netinu eða með mörgum spilurum, eða til að geta

sent öðrum spilurum skilaboð.
Öll N-Gage þjónusta, þar sem þörf er fyrir N-Gage

miðlara, svo sem niðurhal á leikjaskrám, kaup á

leikjum, leikir á netinu, leikir með mörgum

spilurum, gerð spilaranafns, spjall og skilaboð, fela

í sér í sér stórar gagnasendingar.
Þjónustuveitan innheimtir gjald fyrir

gagnaflutning. Þjónustuveitan gefur nánari

upplýsingar um gagnaflutningsgjöld.