Nokia N95 8GB - Niðurhal og kaup á hlutum

background image

Niðurhal og kaup á hlutum

Hægt er að hlaða niður hlutum eins og hringitónum,

myndum, skjátáknum símafyrirtækis, þemum og

myndinnskotum. Sumir þessara hluta eru ókeypis

en aðrir eru til sölu. Hlutir sem hlaðið er niður eru

meðhöndlaðir af viðeigandi forritum tækisins. T.d.

er ljósmynd sem hlaðið hefur verið niður eða .mp3-

skrá vistuð í galleríinu.

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota

forrit og annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d.

forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið

prófuð með Java Verified

.

Hlut er hlaðið niður á eftirfarandi hátt:

1.

Veldu tengilinn.

2.

Veldu viðeigandi valkost til að kaupa hlutinn

(t.d. 'Kaupa').

3.

Lestu vandlega allar upplýsingar.

4.

Til að halda áfram með niðurhalið eða hætta við

það velurðu viðeigandi valkost (t.d. 'Samþykkja'

eða 'Hætta við').

Þegar byrjað er að hlaða niður efni birtist listi yfir

það sem er í gangi hverju sinni og það sem búið er

að hlaða niður.
Listanum er breytt með því að velja

Valkostir

>

Niðurhal

. Þú finnur hluti á listanum og velur

Valkostir

til að hætta við að hlaða niður, en einnig

til að opna, vista eða eyða efni sem búið er að hlaða

niður.