
GPS-móttakari
GPS-móttakarinn er neðst í tækinu. Þegar þú notar
móttakarann skaltu opna takkaborðið, halda
tækinu beint upp og færa það svo í um 45 gráðu
stöðu án þess að nokkuð skyggi á himininn. Ekki
halda höndinni yfir takkaborðinu.
Það getur tekið allt frá
fáeinum sekúndum
upp í nokkrar mínútur
að koma á GPS-
tengingu. Það getur
tekið lengri tíma að
koma á GPS-tengingu
í bíl.
GPS-móttakarinn notar orku rafhlöðunnar. Notkun
hans getur tæmt rafhlöðuna fyrr en ella.