Nokia N95 8GB - Búa til nýjan aðgangsstað

background image

Búa til nýjan aðgangsstað

Ýttu á

og veldu

Verkfæri

>

Stillingar

>

Tenging

>

Aðgangsstaðir

.

Hægt er að fá aðgangsstaðastillingar í skilaboðum

frá þjónustuveitu. Sumir eða allir aðgangsstaðir

gætu verið forstilltir fyrir tækið þitt af

þjónustuveitunni og því getur verið að þú getir ekki

skipt um, búið til, breytt eða fjarlægt aðgangsstaði.

táknar verndaðan aðgangsstað.

táknar aðgangsstað fyrir pakkagögn.

táknar aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet.

Ábending: Hægt er að búa til

netaðgangsstaði (IAP) fyrir þráðlaust

staðarnet með WLAN-hjálpinni.

Til að búa til nýjan aðgangsstað skaltu velja

Valkostir

>

Nýr aðgangsstaður

.

Stillingum aðgangsstaðar er breytt með því að velja

Valkostir

>

Breyta

. Fylgdu leiðbeiningum

þjónustuveitunnar.

Nafn tengingar

— Sláðu inn lýsandi heiti fyrir

tenginguna.

Flutningsmáti

— Veldu gerð

gagnatengingarinnar.

Það hvaða stillingareiti er hægt að velja fer eftir því

hvaða gagnatenging er valin. Fylltu út alla reiti sem

eru merktir með

Þarf að skilgr.

eða rauðri stjörnu.

Aðra reiti þarf ekki að fylla út nema þjónustuveitan

hafi tekið það fram.
Til að geta notað gagnatengingu verður

símafyrirtækið að styðja hana og, ef með þarf, virkja

hana fyrir SIM-kortið þitt.