Nokia N95 8GB - WLAN-hjálp

background image

WLAN-hjálp

WLAN-hjálpin auðveldar þér að tengjast við

þráðlaus staðarnet og vinna með

staðarnetstengingarnar þínar.
WLAN-hjálpin sýnir stöðu þráðlausra

staðarnetstenginga á virka biðskjánum. Valkostir

eru skoðaðir með því að fletta að röðinni sem sýnir

stöðuna og velja hana.
Ef þráðlaust staðarnet finnst við leit birtist

Þráðl.

staðarnet fannst

. Til að búa til netaðgangsstað og

ræsa vafrann með því að nota aðgangsstaðinn

velurðu stöðuna og svo

Ræsa vefskoðun

.

Beðið er um lykilorð þegar örugg þráðlaus

staðarnet eru valin. Nauðsynlegt er að slá inn rétt

heiti netkerfisins (SSID-kóða) til að tengjast við falið

staðarnet. Til að búa til nýjan aðgangsstað fyrir falið

staðarnet velurðu

Nýtt staðarnet:

.

Heiti netaðgangsstaðar birtist í tengingum við

þráðlaus staðarnet. Til að ræsa netvafrann með

þessum aðgangsstað skaltu velja stöðuna og svo

Halda vefskoðun áfram

. Aftengst er við þráðlaust

staðarnet með því að velja stöðuna og svo

Aftengjast v. staðarn.

.

Þegar slökkt er á leit að þráðlausum staðarnetum

og engin tenging við þráðlaust staðarnet er virk

birtist

Slökkt á staðarnetsleit

. Til að kveikja á leit

og leita að þráðlausum staðarnetum velurðu

stöðuna og ýtir á skruntakkann.
Til að ræsa leit að þráðlausum staðarnetum velurðu

stöðuna og svo

Leita að staðarnetum

. Til að

slökkva á leit að þráðlausum staðarnetum velurðu

stöðuna og svo

Slökkt á staðarnetsleit

.

Til að opna WLAN-hjálpina í valmyndinni skaltu ýta

á

og velja

Verkfæri

>

St.net.hjálp

.