Nokia N95 8GB - Um Bluetooth-tengingar

background image

Um Bluetooth-tengingar

Hægt er að tengjast þráðlaust við samhæf tæki með

Bluetooth. Samhæf tæki eru m.a. farsímar, tölvur og

aukabúnaður eins og höfuðtól og bílbúnaður. Hægt

er að nota Bluetooth til að senda myndir,

myndskeið, tónlist, hljóðskrár og minnismiða; til að

tengjast þráðlaust við samhæfar tölvur (t.d. til að

flytja skrár) eða til að tengjast við samhæfan

prentara og prenta myndir.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota

útvarpsbylgjur til samskipta þurfa tækin ekki að

vera í beinni sjónlínu hvert við annað. Hin vegar

þurfa þau að vera í innan við 10 metra (33 feta)

fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á

tengingunni vegna hindrana eins og veggja eða

annarra raftækja.

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification

2.0 sem styður eftirfarandi snið: Advanced Audio

Distribution Profile, Audio/Video Remote Control

Profile, Basic Imaging Profile, Basic Printing Profile,

Dial-up Networking Profile, File Transfer Profile,

Hands-Free Profile, Headset Profile, Human

Interface Device Profile, Object Push Profile, SIM

Access Profile og Synchronization Profile. Til að

tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja

Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem eru

viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal

upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um

samhæfi þeirra við þetta tæki.
Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-

tækni á sumum stöðum. Kanna skal það hjá

yfirvöldum á staðnum eða þjónustuveitunni.
Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa

slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar

aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar

rafhlöðuorku og minnka endingu rafhlöðunnar.
Ekki er hægt að nota Bluetooth þegar tækið er læst.

Sjá „Sími og SIM“, bls. 150.