Raddskipanir
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Hjálparforrit
>
Raddskip.
.
Hægt er að stjórna tækinu með raddskipunum.
Sjá
„Raddstýrð hringing“, bls. 125.
Til að nota raddskipanir til að ræsa forrit og snið
þarftu að opna forritið Raddskipanir og möppuna
Snið
. Tækið býr til raddmerki fyrir forritin og sniðin.
Raddskipanir eru notaðar með því að halda hægri
valtakknum inni í biðstöðu og segja raddskipunina.
Raddskipunin er nafn forritsins eða sniðsins eins og
það birtist á listanum.
Til að bæta fleiri forritum við listann velurðu
Valkostir
>
Bæta við forriti
á aðalskjá
raddskipanaforritsins. Til að bæta við annarri
raddskipun sem hægt er að nota til að opna forritið
velurðu
Valkostir
>
Breyta skipun
og slærð nýju
raddskipunina inn sem texta. Forðast skal að nota
mjög stutt nöfn og skammstafanir.
Hlustað er á tilbúið raddmerki með því að velja
Valkostir
>
Spila raddskipun
.
Stillingum raddskipana er breytt með því að velja
Valkostir
>
Stillingar
. Til að slökkva á
hljóðgervlinum sem spilar raddmerki og -skipanir á
tungumáli tækisins velurðu
Hljóðgervill
>
Óvirkt
. Til að núllstilla raddforritið, t.d. þegar skipt
er um aðalnotanda tækisins, skaltu velja
Fjarlægja
raddaðlögun
.