Nokia N95 8GB - Lækningatæki

background image

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur,

þar með talin notkun þráðlausra síma, kann að

trufla virkni lækningatækja sem ekki eru nægilega

vel varin. Hafa skal samband við lækni eða

framleiðanda lækningatækisins til þess að komast

að því hvort það sé nægilega vel varið fyrir

utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla

nánari upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í námunda

við heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess

efnis kveða á um að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða

heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur

verið næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.