Nokia N95 8GB - Neyðarhringingar

background image

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal

þetta tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus kerfi,

kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Því er

ekki hægt að tryggja tengingar við hvaða skilyrði

sem er. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á

þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg

fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:

1.

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga

skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.
Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á

að gilt SIM-kort sé rétt sett í tækið.

2.

Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa skjáinn

og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3.

Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi

svæði er valið. Neyðarnúmer eru breytileg eftir

stöðum.

4.

Styddu á hringitakkann.

Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að

gera þær óvirkar áður en neyðarsímtal er mögulegt.

Ef ótengda sniðið eða flugsniðið er virkt kann að

vera þörf á að skipta um snið til að virkja

símaaðgerðina áður en hægt er að hringja

neyðarsímtal. Nánari upplýsingar má fá í þessari

handbók eða hjá þjónustuveitunni.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar

upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er.

Þráðlausa tækið getur verið eina samskiptatækið á

slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi

til þess.

172

Viðbótaröryggisupplýsingar