Nokia N95 8GB - Sprengifimt umhverfi

background image

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er

á sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást

á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt

andrúmsloft telst vera á svæðum þar sem yfirleitt er

beðið um að drepið sé á vél bifreiðar. Neistaflug á

slíkum svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og

haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva

skal á tækinu á eldsneytisstöðvum, svo sem við

eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal

takmarkanir á notkun útvarpsbúnaðar í

eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og

dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða

þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem

sprengihætta er mikil eru oftast vel auðkennd, en

þó ekki alltaf. Þau eru m.a. neðri þilför skipa,

aðstaða til efnaflutninga eða geymslu og svæði þar

sem efni líkt og korn, ryk eða málmagnir eru í lofti.

Þú ættir að kanna það hjá framleiðendum

farartækja sem nota jarðgas (líkt og própan eða

bútan) til að ákvarða hvort hægt sé að nota þetta

tæki á öruggan hátt nálægt þeim.