Nokia N95 8GB - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk

útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort í

hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft

að minnsta kosti 1,5 sentímetrar (5/8 tommur) frá

líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða halda er

notuð þegar tækið er borið á líkamanum ætti slíkur

búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti

tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá

líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð

þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í

sumum tilvikum getur sending gagna eða boða

tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja skal að

ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til

sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu

dregist að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða

aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni

nálægt tækinu því upplýsingar sem þar eru

geymdar gætu þurrkast út.